Grensásvegur 52, 108 Reykjavík (Austurbær)
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
74 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1961
Brunabótamat
35.350.000
Fasteignamat
55.650.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2.hæð (efstuhæð) við Grensásveg 52. Eignin er skráð 74,7 m2 en þar af íbúð 67,0 m2 og geymsla 7,7 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Skv. upplýsingum frá seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir árið 2021: Eldhús var endurnýjað ásamt tækjum. Allt rafmagn innan íbúðar endurnýjað, skipt var um parket og innihurðir í íbúðinni. Fyrir um 10 árum síðan var skipt um járn á þaki í húsinu. Ástandsskýrsla var gerð árið 2022 og hægt er að óska eftir henni. 

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 1 er rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, vaskur og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er með sturtuklefa, vegghengdu salerni og innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél.
Sofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir
Geymsla er í sameign. Er skráð 7,7 m2.

Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Einnig er aðgengi að sameignilegu þvottahúsi, en tengi er fyrir þvottavél inni á baði í íbúðinni.

Verð kr. 59.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.