Skipasund 5, 104 Reykjavík (Vogar)
48.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
48 m2
48.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1950
Brunabótamat
21.800.000
Fasteignamat
43.600.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555  - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

FASTMOS kynnir:  Mikið endurnýjuð 48,5 m2, 2-3 herbergja risíbúð í þríbýlishúsi á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík. Eignin er skráð 48,5 m2 en er að hluta til undir súð og er því stærri en uppgefnir fermetrar. Eignin skiptist í dag í eldhús, svefnherbergi, baðherbrgi og stofu. Eignin var áður með tveimur svefnherbergum og væri möguleiki á að skipta herberginu upp í tvö herbergi.
Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla almenna þjónustu, skóla og stofnbraut.

Skv. upplýsingum frá seljanda var nýlega farið í eftirfarandi framkvæmdir: Íbúðin flotuð að innan, lagðar nýjar vatnslagnir, nýtt ofnakerfi, endurnýjað rafmagnslagnir þ.m.t ný rafmagnstafla í eldhusi og aukin öryggi í aðaltöflu. Einnig var sett nýtt parket, nýr gluggi í stofu, nýr hleri uppá háaloft, baðherbergið endurnýjað og ný eldhusunnretting. Að utan, þá var austurhlið hússins bollaslípuð, endurmúraður með viðgerð á sprungum og endurnýjaður gaflin á austurhlið (árið 2023). Vesturhliðin var tekin i gegn 2018.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.



Nánari lýsing:
Stofa 
er í opnu rými með parketi í gólfi. Úr stofu er aðgengi upp á háaloft.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð, ísskápur og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél, þvottavél og litlum frysti í innréttingu.
Svefnherbergi er með rúmgott og með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísalagt. Á baði er sturta, handklæðaofn, vegghengt salernig og innrétting með skolvask.

Verð kr. 48.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.