Laxatunga 143, 270 Mosfellsbær
159.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
224 m2
159.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
109.300.000
Fasteignamat
134.400.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt 224,6 m2, 5 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Laxatunga 143 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 224,6 m2, þar af einbýli 184,8 m2 og bílskúr 39,8 m2. Eignin skiptist í forstofu, hol, 5 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, stofu, eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Húsið er viðhaldslítið bárujárnsklætt hús. Gólfhiti er í öllu húsinu og innbyggð lýsingu með dimmer. Allar innréttingar frá Axis. Steyptar verandir með heitum og köldum potti. Pottar eru klæddir með viðhaldsfríu efni. Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni. Eigendur skoða skipti á minni eign í Mosfellsbæ. Eignin getur verið laus fljótlega.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Nánari lýsing:
Forstofa
er með vinylparketi á gólfi. Innangengt í bílskúr úr forstofu í gegnum þvottahús.
Hol er með vinylparketi á gólfi.
Sjónvarpsherbergi er inn af holi með vinylparketi á gólfi.
Stofa er tveimur þrepum fyrir neðan aðalhæðina, rúmgóð og björt með vinylparketi á gólfi og glæsilegu útsýni. Útgengt er úr stofu á steypta verönd með heitum og köldum potti.  
Eldhús er með vinylparketi á gólfi og dökkri innréttingu með blástursofni og örbylgjuofni og góðu skápaplássi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu. Stór eldhúseyja með helluborði. Eldhústæki frá AEG.
Hjónasvíta er rúmgóð með vinylparketi á gólfi og góðu fataherbergi. Útgengt úr hjónasvítu á steypta verönd.
Svefnherbergi 2 er inn af holi, rúmgott, með vinylparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er inn af sjónvarpsholi með vinylparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með vinylparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 1 er við hlið hjónasvítu með vinylflísum á gólfi, góðri innréttingu, handlaug, baðkari, walk-in sturtu og vegghengdu salerni. Fibo baðplötur er á veggjum og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi 2 er inn af forstofu með vínylflísum á gólfi, innréttingu, handlaug, walk-in sturtu og vegghengdu salerni. Fibo baðplötur er á veggjum og opnanlegur gluggi.
Þvottahús og geymsla eru inn af forstofu, með parketi á gólfi og hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er steyptur og flotaður. Bílskúrshurð er með rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Bílskúr hefur verið skipt upp með léttum vegg og er þar innangengt í auka svefnherbergi. Mögulegt að breyta til baka, taka niður vegg og stækka bílskúr. 
Svefnherbergi 5 er inn af bílskúr með parketi á gólfi. Merkt geymsla á teikningu.
Bílaplan er steypt og upp hitað með plássi fyrir 4-6 bíla.

Verð kr. 159.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.