Stóriteigur 6, 270 Mosfellsbær
121.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
5 herb.
167 m2
121.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
78.640.000
Fasteignamat
94.600.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 -  Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og mikið endurnýjað 167,0 m2 raðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Stórateig 6 í Mosfellsbæ. Timburverönd með heitum potti og afgirtur bakgarður í suðurátt. Hellulagt bílaplan. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu. Eignin er skráð 167,0 m2, þar af raðhús 145,2 m2 og bílskúr 21,8 m2. Eignin skiptist í: Neðri hæð: forstofa, gestasnyrting, bílskúr, eldhús, stofa og borðstofa. Efri hæð: Fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Skv seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir á árunum 2017-2020: Garðurinn tekinn í gegn, sett upp timburverönd með heitum potti og garðhús. Settur var gólfhiti í allt húsið, Quick Steð parket frá harðviðarvali á gólf ásamt því að skipt var um vatnslagnir og rafmagn (nema í bílskúr). Skipt var um þakkant og glugga á efri hæðinni ásamt eldhúsglugga.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

 
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa: Er með flísum á gólfi og fataskáp. Inn af forstofu er gestasalerni.
Gestasalerni: Er með flísum á gólfi, vegghengdu salerni og skolvask.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu og eyju. Dacton steinn frá Rein á borði. Í innréttingu er helluborð með innbyggðri viftu, tveir ofnar, vínkælir, vaskur, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Stofa/borðstofa: Er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd með heitum potti og afgirtum bakgarði til suðurs. Í garðinum er útigeymsla. 
Bílskúr: Er með steyptu gólfi. Innaf bílskúr er geymsla. Er skráðir 21,8 m2

Efri hæð:
Svefnherbergi 1:
Er með parketi á gólfi og fataskáp. Úr herbergi er útgengt út á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi 2: Er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3: Er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 4: Er með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt, með 'walk in' sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús: Er með flísum á gólfi, innréttingu og handklæðaofni. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er gengið út á svalir í norðurátt

Verð kr. 121.900.000,-



 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.