Jörfabakki 8, 109 Reykjavík
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
112 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1969
Brunabótamat
51.300.000
Fasteignamat
59.550.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

FastMos ehf. kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á fyrstu hæð við Jörfabakka 8. Eignin er skráð 112,5 m2, en þar af íbúð 94,7 m2, geymsla 15,7 og föndurherbergi 10,8 m2 (auka herbergi). Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, tvennar svalir, geymslu í kjallara og auka herbergi í kjallara með sér sturtu og sameiginlegu salerni. Herbergið er í útleigu og gefur því góðan möguleika á leigutekjum. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Hol með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt er á suðvestur svalir.
Eldhús er með flísum á gólfi, elhúskrók, hvítri háglans innrétting og hvítum flísum á milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu en ísskápur og eldavél standa við hlið innréttingar. Háfur er fyrir ofan eldavél.
Þvottahús/búr er inn af eldhúsi með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með parket á gólfi og góðum fataskáp. Útgengt er á svalir.
Svefnherbergi 2 er rúmgott  með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með hvítri innréttingu, salerni, handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni.
Auka herbergi er í kjallara með parket á gólfi, opnanlegum glugga og sér sturtu. Aðgengi að sameiginlegu salerni er í sameign. Herbergið er í útleigu í dag.
Sérgeymsla er í kjallara.  
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

* Gegnheilt parket á íbúð var slípað og lakkað 2022.
* Nýlegt salerni á baðherbergi.
* Þak hússins var endurnýjað sumarið 2023 skv. upplýsingum frá húsfélagi.

Verð kr. 67.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.