Uglugata 29, 270 Mosfellsbær
133.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
158 m2
133.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
88.100.000
Fasteignamat
105.950.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 -  Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 158,5 m2 parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Uglugötu 29 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 158,5 m2, þar af íbúð 127,4 m2 og bílskúr 31,1 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. Vönduð tæki. Mikil lofhæð með innbyggðri lýsingu sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Lóð er ófrágengin.
Húsið stendur á fallegum stað neðarlega í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Stutt í Helgafellsskóla sem er bæði grunn- og leikskóli. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Útgengt er út um svalahurð út á lóð. Í eldhúsi er falleg innrétting með eyju frá Eirvík. Í innréttingu er spanhelluborð og tveir ofnar frá Mile. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Svefnherbergi nr 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari, stórri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og tveimur sturtuhausum.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Gott geymsluloft er í bílskúr.
Gólfhiti er á gangi, forstofu, eldhúsi, stofu og borðstofu.

Verð kr. 133.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.