Leirvogstunga 33, 270 Mosfellsbær
220.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
6 herb.
321 m2
220.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
171.600.000
Fasteignamat
162.250.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 321,8 m2 einbýlisshús á tveimur hæðum og innbyggðum bílskúr ásamt auka íbúð á neðri hæð á rólegum útsýnisstað við Leirvogstungu 33. Eignin er skráð 321,8 m2, þar af einbýli 278,6 m2 og bílskúr 43,2 m2. Eignin skiptist í forstofu, 2 baðherbergi, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi (eitt nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag), þvottahús, geymslu og bílskúr. Auka íbúð skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, geymslu, stofu og eldhús. Stór bakgarður í suður- og vesturátt. Glæsilegt útsýni er frá efri og neðri hæð hússins. Stórt steypt bílaplan með snjóbræðslu. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent.

Efri hæð:
Forstofa
er með flísum á gólfi.
Gestasalerni er með flísum á gólfi, salerni, innréttingu með skolvask og handklæðaofni.
Eldhús er með parketi á gólfi. Í innréttingu eru tveir ofnar, kaffivél, niðurfelldur vaskur, innbygggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og helluborð. Granít frá Rein á borði. Úr eldhúsi er gengið út á svalir með svalalokun og glæsilegu útsýni í suðurátt.
Stofa/borðstofa er í stóru og björtu rými með parketi á gólfi. Glæsilegt útsýni er úr rýminu.
Bílskúr er rúmgóður og með flísum á gólfi (43,2 m2). Innangengt er í bílskúr frá forstofu. Innaf bílskúr er geymsla.
Geymsla er innaf bílskúr og með flísum á gólfi. Úr geymslu er útgengt út á svalir

Neðri hæð:
Gangur er með parketi á gólfi. Við endan á ganginum er svalahurð út í bakgarð. Þer er gert ráð fyrir heitum potti.
Hjónaherbergi (Master bedroom) er mjög rúmgott og með parketi á gólfi. Úr herbergi er gengið út á hellulagða verönd. Innaf herbergi er fataherbergi og baðherbergi nr. 1
Baðherbergi nr. 1 er með flísalagt í hólf og gólf. Á baði er innrétting með skolvask, handklæðaofn, vegghengt salerni og 'walk in' sturta
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 3 er mjög rúmgott og með parketi á gólfi. Er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt í hólf og gólf. Á baði er innrétting með skolvask, baðkari, 'walk in' sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Fín innrétting með vask og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Auka íbúð (er um 60 m2):
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd. Fallegt útsýni er úr stofunni
Eldhús er með innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt í hólf og gólf. 'Walk in' sturta, handklæðaofn, vegghengt salerni og innrétting. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla er með parketi á gólfi

Verð. 220.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.