Bjargslundur 6A, 270 Mosfellsbær
133.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
5 herb.
221 m2
133.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
18.650.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun ** - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt parhús á tveimur hæðum með bílskúr í byggingu við Bjargslund 6A í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, þrjú baðherbergi, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Köld geymsla er við hlið húsins í bakgarði.
Frábært skipulag. Mikil lofthæð er í húsinu sem gerir það bjart og skemmtilegt. Frábær staðsetning þar sem stutt er í náttúruna og gönguleiðir. Húsið stendur á 1.444,5 m2 eignarlóð.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent.

Eignin er skráð 200,3 m2, þar af íbúð 172,3 m2 og bílskúr 28,0 m2 en auk þess eru svalir með svalalokun 20,8 m2 eða samtals 221,1 m2. Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda rúmlega tilbúin til innréttinga á byggingarstigi B3 (byggingarstigi 5 miðavið gamla staðalinn, ÍST 51:2001). En auk þess verður sett upp svalalokun ásamt hita í svalagólf. Rafmagn fullfrágengið með tenglum og rofum. Hljóðdúkur settur upp í loft í stofu, eldhúsi, forstofu og alrými á efri hæðinni. 

Verð kr. 133.000.000,- 

Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhús:

Útveggir: Parhús byggt úr CLT einingum, húsið er á tveimur hæðum. Útveggir eru 100mm og einangraðir með 100 mm ull að utan og klætt með ál klæðningu Ral 7016. Innskot andyrri og svalir klæddar með lerki og bandsöguð fura í lofti.
Þak: Þakið er 160mm CLT með tvöföldum ábræddum þak dúk, ofan á hann kemur 150mm xps einangrun og farg.
Gluggar og hurðir: Gluggar eru ál/tré með tvöföldu k-gleri, inngangs hurðir eru einnig ál/tré sem og rennihurðir RAL 7016 og er bílskúrshurðin í sama lit.
Lóð: Lóðinni er skilað í hæð og grófjöfnuð. Á lóðinni verða sorptunnuskýli og gert er ráð fyrir bílastæðum.

Innahús:
Gólf: Gólf eru steypt á báðum hæðum og röraslötuð.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir klæddir með spónaplötum innralag og gipsplötum ytra lag, sparslaðir og grunnaðir. Veggir á baðherbergjum og snyrtingu eru eingöngu klæddir og ómeðhöndlaðir.
Loft: Gipsloft er á neðri hæð, baðherbergjum, bílskúr, geymslu og þvottahúsi. Stofa, eldhús, forstofa og almennt rými á efri hæð er með hljóðdúk.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í tengla og rofa. Innfeld ljós á neðri hæð og gesta salerni fullfrágengin, í hljóðdúk á efri hæð samkomulag um frágang.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatn klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf, loft og veggi samkvæmt teikningum.Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólf hitakerfi og afhendis án þráðlausra hitastýringa. Hámarkshiti á heitu vatni út er 60 gr. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar teikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar.

Eignin afhendis tilbúin til innréttingar samkvæmt byggingastigi B3 (byggingastig 5 miðað við gamla staðalinn, ÍST 51:2001). Byggingagjöld og gatnagerðagjöld eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugargjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3 % sem er innheimt við endanleg brunbótamat. Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar. Allar byggingateikningar afhendast samþykktar frá Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.