Arnarsmári 40, 201 Kópavogur
89.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
115 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
68.150.000
Fasteignamat
78.200.000

** Hafðu samband og bókaðui tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

FASTMOS kynnir: Glæsileg og rúmgóð 115,3 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með afgirtri hellulagðri verönd (ca. 37 m2 sérafnotareitur) í nýlegu lyftuhúsi við Arnarsmára 40 á þessum vinsæla stað á Nónhæð í Kópavogi.
Eignin er skráð 115,3 m2 þar af íbúð 104,7 m2, geymsla 10,6 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara.
Húsið sem er byggt árið 2020 er einangrað að utan og klætt með álklæðningu og er allur frágangur til fyrirmyndar bæði að utan og innan.  Frábær staðsetning, miðsvæðis á höfðuborgarsvæðinu, stutt í margskonar þjónustu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús/stofa/borðstofa er opnu björtu og rúmgóðu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg hvít innrétting með stórri eyju. Í innréttingu er innbyggður ísskápur/frystiskápur, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, háfur og ofn. Úr stofu er gengið út á stóra afgirta hellulagða verönd í suðurátt. 
Svefnherbergi nr 1 (Hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi. Innaf hjónaherbergi er fataherbergi.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og 'walk in' sturtu.
Þvottahús er inn af baðherbergi, flísalagt með með góðri innréttingu og vinnuborði. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Sérgeymsla er í kjallara 10,6 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Áætlað fasteignamat fyrir árið 2025 er 81.050.000 kr.

Verð 89.900.000 kr.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.