** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg 94,4 m2 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngang og timburverönd, ásamt 27,7 m2 bílskúr við Hjallahlíð í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Frábær staðsetning í Mosfellsbæ, rétt við skóla, leikskóla, sundlaug og golfvöll. Stutt í verslun og alla helstu þjónustu. Íbúðin er skráð 94,4 m2 og bílskúrinn 27,7 m2 samtals 122,1 m2.Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfi og upphengdum skenk sem fylgir.
Eldhús: Í eldhúsi er falleg hvít innrétting með miklu skápaplássi, harðparket á gólfi. Í innréttingu er ofn, örbylgjuofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Burstað stál á milli efri skápa og borðplötu
Stofa: Opið er úr eldhúsi inn í stofu með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gegnið út á timburverönd í suðurátt og sameiginlega garð.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi): Er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2: Er með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3: Er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi : Flísalagt gólf. Góð innrétting. Baðkar með sturtu.
Þvottahús/geymsla: Sér í íbúð. Mjúkar flísar á gólfi. Vinnuborð með vaski og hillur.
Sér geymsla: Gengið í sér geymslu við hlið aðalinngangs (köld geymsla).
Bílskúr: 27,7 m2 í bílskúralengju gegnt húsinu. Merktur 01.04
Möguleiki að kaupa annan samliggjandi bílskúr merktan 01.03
Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2024 er 78.045.000 kr.
Verð kr. 82.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.