** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða [email protected] **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 170,4 m2 parhús með innbyggðum bílskúr við Grenibyggð 26 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 170,4 m2, þar af parhús 136 m2, sólstofa 12,1 m2 og bílskúr 22,3 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, bílskúr og geymslu.
Gott skipulag og mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu að hluta. Geymsluskúr með rafmagi er í bakgarði. Eldhús var gert upp árið 2016 og árið 2023. Nýtt harðparket frá árinu 2019. Frábær staðsetning í grónu og friðsælu hverfi í Mosfellsbæ, leiksskóli í næsta nágrenni.Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskápum og harðparketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út verönd.
Herbergi #2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Herbergi #3 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, handklæðaofni, vegghengdu salerni, sturtu og baðkari. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottahús er með innréttingu og vaski. Flísar á gólfi. gengið er í gegnum þvottahús í bílskúr. Úr þvottahúsi er hægt að komast upp á geymsluloft.
Eldhús: Í innréttingu er ofn, helluborð, vaskur og akríl steinn á borði frá Fanntófell. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Innréttingin er frá árinu 2016, en helluborð, vaskur og borðplatan er frá árinu 2023. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Er í björtu rými með kamínu og harðparketi á gólfi. Úr borðstofu er opið inn í stofu/garðskála. Úr garðskála er gengið út á verönd í suðausturátt.
Bílskúr er með máluðu gólfi og geymslulofti og góðri innréttingu með vinnuborði. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, hiti, rafmagn og rennandi vatn er í bílskúr. Innangengt er úr bílskúr inn í húsið í gegnum þvottahús.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 109.850.000,-
Verð kr. 119.900.000,
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.