** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Klapparhlíð 26, íbúð 103 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða [email protected] - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 6908040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 83,7 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Klapparhlíð 26 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 83,7 m2, þar af íbúð, 75,3 m2 og geymsla 8,4 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í sameign. Timburverönd í suðurátt. Frábær staðsetning. Stutt í leikskóla, grunnskóla, sundlaug/líkamsrækt og golfvöll.
Skv. seljanda var skipt um parket og hurðar árið 2023. Skipt var um ofn, helluborð og háf á árunum 2020-2022. Nánari lýsing:Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu, salerni, baðkari með sturtu aðstöðu og handklæðaofn. Inn af baði er þvottaherbergi.
Þvottaherbergi er inn af baðherbergi. Fataskápur og flísar á gólfi.
Eldhús er með L-laga innréttingu. Í innréttingu er blástursofn, háfur og helluborð. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa og
borðstofa er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Sérgeymsla er í sameign. 8,4 m2 geymsla.
Eigninni fylgir hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu sem er á jarðhæð.
Verð kr. 66.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.