Asparfell 2, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
47.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
58 m2
47.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1972
Brunabótamat
28.650.000
Fasteignamat
35.500.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555  **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 7.hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi við Asparfell 2, 111 Reykjavík. Eignin er skráð 58,0 m2, þar af íbúð 54,4 m2 og geymsla 3,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús stofu/borðstofu og sérgeymslu í kjallara. Glæsilegt útsýni er frá eigninni. Frábær staðsetning þar sem stutt er í verslun, skóla, leikskóla og alla almenna þjónustu.

Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi er með parketi á gólfi, litlu skrifborði og fataskáp.
Baðherbergi er með flotuðu gólfi og flísum á veggjum. Baðkar með sturtu aðstöðu.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og innbyggður ísskápur. 
Stofa/borðstofa er í opnu rými með glæsilegu útsýni. Parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í austurátt.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameignlegu þvottahúsi sem er á hæðinni og er hver með sína þvottavél. Einnig geymsluskápur í sameign sem fylgir íbúðinni. Sameignileg hjóla- og vagnageymla er á jarðhæð

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 40.400.000,-

Verð kr. 47.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.