Fálkahöfði 2, 270 Mosfellsbær
76.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
133 m2
76.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1997
Brunabótamat
55.660.000
Fasteignamat
71.850.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555  **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt 104,6 m2 endaíbúð með glæsilegu útsýni á efstu hæð með sérinngangi af opnum svalagangi, ásamt 29,2 m2 endabílskúr við Fálkahöfða 2 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús, stofu/borðstofu, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð 133,8 m2, þar af íbúð 99 m2 og geymsla 5,6 m2 og bílskúr 29,2 m2. 
Þetta er björt og skemmtileg eign í góðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ, mjög stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt, en auk þess er golfvöllur og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.


Skv. seljanda var skipt um harðparket árið 2020. Skv. upplýsingum frá húsfélaginu var húsið málað síðasta sumar. Sumarið 2017 var þak, þakkantur, járn innan við þakkant yfirfarið og málað. Einnig var þak yfir bílskúrum málað á sama tíma.


Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Sjónvarpshol er með harðparketi
Eldhús er með innréttingu og borðkrók við útbyggðum glugga með fallegu útsýni. Í innréttingu er bakaraofn, spanhelluborð og vifta.
Stofa/borðstofa er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofunni er gengið út á svalir í suðvestur- til suðausturátt með glæsilegu útsýni. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturta. Hvít baðinnrétting.
Herbergi #1 er rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Herbergi #2 er rúmgótt herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og skolvask.
Bílskúr er með gluggum á tveimur hliðum. Skolvaskur og ofn. Búið er að setja gott geymsluloft. Epoxý á gólfi.

Verð kr. 76.000.000 kr-

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.