Leirvogstunga 29, 270 Mosfellsbær
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
5 herb.
290 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2010
Brunabótamat
139.700.000
Fasteignamat
124.350.000

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt 290,8 m2 einbýlisshús á tveimur hæðum og innbyggðum bílskúr á rólegum útsýnisstað við Leirvogstungu 29. Eignin er skráð 290,8 m2, þar af einbýli 250,2 m2 og bílskúr 40,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, 2 baðherbergi, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, þvottahús, 2 geymslur og bílskúr. Stór bakgarður í suður- og vesturátt. Í garði er skjólgóð timburverönd með heitum potti, köldum potti og steypt gönguleið. Glæsilegt útsýni er frá efri og neðri hæð hússins. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Stórt steypt bílaplan með snjóbræðslu. 

Efri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gangur með fataskáp.
Gestasalerni er innaf forstofu. Er með flísum á gólfi og salerni.
Eldhús er með flísum á gólfi. Í innréttingu eru tveir ofnar og helluborð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og stórum ísskáp.
Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd í suðurátt og úr stofu er gengið út á svalir i vesturátt. Glæsilegt útsýni er úr rýminu.
Bílskúr er rúmgóður og með epoxý á gólfi (40,6 m2). Innangengt er í bílskúr frá gangi. Innaf bílskúr er geymsla I. Úr bílskúr er gengið út á bílaplan.

Neðri hæð:
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi. Úr holi er gengið út á timburverönd með heitum potti og bakgarð í suðurátt. 
Svefnherbergi Nr.1(Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Innaf herbergi er fataherbergi.
Baðherbergi Nr. 1 er inn af hjónaherbergi með vegghengdu salerni, handklæðaofn og sturtu. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi Nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi Nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi Nr. 4 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi Nr. 2 er flísalagt. Á baði er innrétting, baðkar, sturta, vegghengd salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er með epoxý á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla Nr. 2 er skráð 36,1 m2

Allar nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.