Blikahöfði 1, 270 Mosfellsbær
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
113 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1998
Brunabótamat
47.710.000
Fasteignamat
63.850.000

**Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun  - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555**

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 84,6 m2 íbúð með fallegu útsýni á 2. hæð, ásamt 29,2 m2 endabílskúr við Blikahöfða 1 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús, stofu/borðstofu, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð 113,8 m2, þar af íbúð 77,2 m2 og geymsla 7,4 m2 og bílskúr 29,2 m2. 
Þetta er björt og skemmtileg eign í góðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ, mjög stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt, en auk þess er golfvöllur og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.


Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi og harðparketi á gólfi.
Sjónvarpshol er með harðparketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri U-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, blástursofn, helluborð og háfur.
Stofa/borðstofa er björt með harðparketi á gólfi. Úr stofunni er gengið út á svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. 
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu og hvítri innréttingu.
Herbergi #1 er hjónaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Herbergi #2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og vinnuborði með vaski.
Bílskúr er með gluggum og máluðu gólfi. Geymsluloft, hillur, vinnuborð og vaskur. 

Verð kr. 67.900.000 kr-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.