Vefarastræti 42, 270 Mosfellsbær
56.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
69 m2
56.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2018
Brunabótamat
41.700.000
Fasteignamat
50.800.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun  - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected]  - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 6908040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 69,8 m2, 3ja herbergja íbúð við Vefarastræti 42 í 270 Mosfellsbæ. Íbúðin er skráð 69,8 m2 og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, eldhús og stofu. Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í strætóstoppistöð.

Smelltu hér til að fá sölubækling

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur með geymsluskáp og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengt salerni og sturtu auk tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Eldhús og stofa er í opnu rými með útgengi út á svalir (8,4 m2 svalir) í suðurátt með glæsilegu útsýni. Í eldhúsi er L-laga innrétting með eikar viðaráferð á neðri skápum og efri skápar eru hvítmálaðir. Borðplata er hvít harðplastborðplata. 
Sameign: Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Verð kr. 56.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.