Miðhús 8, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
72.000.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
3 herb.
116 m2
72.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1991
Brunabótamat
52.700.000
Fasteignamat
70.900.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 6908040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóða 3-4 herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Miðhús 8. Eignin er skráð 116,3 m2 og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, geymslu/herbergi/skrifstofu, baðherbergi, sjónvarpshol og þvottahús með góðu geymsluplássi. Bakgarður og timburverönd í suður- og austurátt. Stutt í alla helstu þjónustu, leikskóla skóla og Egilshöll.

Verið er að fara að mála húsið, þakið og timburverk hússins að utan og greiðir seljandinn fyrir þá framkvæmd.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi
Eldhús er með gamallri innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er helluborð, vifta og ofn.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengd salerni, innrétting og baðkar með sturtu aðstöðu.
Svefnherbergi nr.1 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Geymsla er með parketi á gólfi og glugga. Hægt að nýta sem skrifstofu eða lítið herbergi.
Gangur er með parketi á gólfi og fataskápum.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Þvottahús/geymsla er rúmgott og með flísum á gólfi.

Verð. 72.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.