Tröllateigur 20, 270 Mosfellsbær
72.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
122 m2
72.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
59.820.000
Fasteignamat
64.900.000

** Hringdu og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og björt 122,5  m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, ásamt rúmgóðu bílastæði í bílakjallara í lyftuhúsi við Tröllateig 20 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur í sameign. Sér bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.

Eignin er skráð 122,5 m2, þar af íbúð 111,0 m2, geymsla 7,0 m2 og geymsla 4,5 m2. Bílastæði í bílageymslu merkt B32 fylgir eigninni. 
Búið er að leggja rafmagn í bílastæði eignarinnar í bílageymslu og getur kaupandi þá fengið sér hleðslustöð til að tengja.

Nýlega var farið í miklar endurbætur á þaki hússins. úið að skipta um þak á húsinu.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er bjart með U-laga innréttingu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með útgengi út á svalir í suðausturátt. Stórir gluggar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Flísalagt baðherbergi með vegghengdu salerni, sturtu, skápum og innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er innan íbúðar, rúmgott með innréttingu og vaski. Flísar á gólfi. 
Tvær geymslur fylgja íbúðinni. Önnur á jarðhæð og hin í bílageymsluhúsi.

Í sameign hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Í bílakjallara er snyrtileg aðstaða til að þvo bílinn. Hjólastólaaðgengi er í öllu húsinu. Öryggis- og myndvélakerfi er í sameign.

Verð kr. 72.900.000.- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.