** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 **FASTMOS kynnir: Vel skipulögð og björt ca. 85 m2, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (inngangur á 2.hæð), ásamt stæði í bílageymslu(1. hæð) við Rekagranda 4 í Reykjavík. Fallegt útsýni og tvennar svalir. Birt stærð er skráð 82,0 m2 en einnig fylgir eigninni ca. 3 m2 sérgeymsla sem ekki er skráð í fermetratölu eignarinnar. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, sérgeymslu og stæði í bílageymslu. Innangengt er úr bílageymslunni í húsið.
Frábær staðsetning, barnvænt umhverfi og stutt í helstu þjónustu í hverfinu. Grandaskóli og leikskólar eru í göngufæri. Þá er stutt í íþróttasvæði KR og Gróttu og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Í bílageymslu er gert ráð fyrir að hægt sé að tengja rafbíla við stæði en sjálf stöðin og tenging er á kostnað viðkomandi.Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með innréttingu og kork á gólfi. Í innréttingu er sambyggður ofn og helluborð ásamt viftu.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt.
Baðherbergi er með innréttingu og baðkari með sturtu aðstöðu. Flísar í hólf og gólf. Tengi er fyrir þvottavél. Gluggi er á baðherbergi.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi. Úr herberginu er gengið út á svalir í norðurátt með fallegu útsýni.
Svefnherbergi II er með fataskáp og parketi á gólfi
Sérgeymsla er á 2. hæð og er ekki í fermetratölunni.
Íbúðinni sér bílastæði í bílageymslu. Einnig fylgir íbúðinni hlutdeild að sameignlegu þvottahúsi ásamt sameignilegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 63.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.