Ásland 1, 270 Mosfellsbær
129.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
209 m2
129.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2000
Brunabótamat
89.650.000
Fasteignamat
111.100.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 6908040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Mjög fallegt einbýlishús með stórum tvöföldum bílskúr á fallegum útsýnisstað við Ásland 1 í Mosfellsbæ.  Eignin skráð 209,1 m2, þar af einbýli 152,5 m2 og bílskúr 56,6 m2. Eignin stendur á 1.121 m2 eignarlóð. Glæsilegt útsýni.
Eignin skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, snyrtingu, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr og geymsla standa fyrir framan húsið.

Mikil lofthæð er í eigninni með innfelldri lýsingu.  Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og hannaðar af Rut Káradóttur, innihurðir extra háar.  Allir gluggar eru plasthúðaðir stálgluggar.  Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og klætt með keramikflísum.
Bílaplan með snjóbræðslu. Stór og fallegur garður með timburverönd og geymsluskúr.


Nánari lýsing:
Forstofa: Er með fataskápum og náttúrustein á gólfi. Rennihurð er úr forstofu.
Svefnherbergi nr. 1(hjónaherbergi): Er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr 2: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi nr 3: Er með parketi á gólfi.
Snyrting: Er með vegghengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með miklu skápaplássi og granítborðplötu. Náttúrusteinn á gólfi.
Baðherbergi/líkamsrækt: Er með innréttingu með granítborðplötu, fataskápum, stórri sturtu, og heitum potti. Úr baðherbergi er gengið út á timburverönd.
Þvottahús: Er rúmgott með innréttingu, skápum, vinnuborði og vaski. Flísar á gólfi. Gluggi er á þvottahúsi.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi og granítborðplötu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél,  tveir ofnar, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Náttúrusteinn á gólfi.
Stofa og borðstofa: Er í stóru og björtu opnu rými mikilli lofthæð og innbyggðri lýsingu. Stórir gluggar eru í rýminu með miklu útsýni. Úr stofu er gengið út á timburverönd og garð.
Bílskúr: Er rúmgóður með hita, rafmagni, rennandi vatni, salerni, tveimur innkeyrsluhurðum og gönguhurð. Rafmagnsopnun er á báðum innkeyrsluhurðum.
Geymsla: utangengt er í geymsluna sem gengur yfir milliloft í bílskúrnum.

Verð kr. 129.900.000-.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.