Kvíslartunga 43, 270 Mosfellsbær
144.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
7 herb.
262 m2
144.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
114.550.000
Fasteignamat
111.650.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt 262,7 m2 m2 parhús á tveimur hæðum, bílskúr við Kvíslartungu 43 í Mosfellsbæ. Mjög fallegt útsýni er frá húsinu. Bakgarður í suðurátt með timburveröndum og heitum potti. Steypt verönd með nýju gróðurhúsi. Steypt bílaplan og gönguleið meðfram húsinu með snjóbræðslu. 
Mjög rúmgóð svefnherbergi og stofur. 

Eignin skiptist í: Neðri hæð: tvö svefnherbergi, hol, forstofu, bílskúr, þvottahús, geymslu, gestasnyrtingu, eldhús, stofu og borðstofu. Efri hæð skiptist í: fjögur herbergi (eitt þeirra notað í dag sem sjónvarpsherbergi), hol og baðherbergi.
Eignin er skráð 262,7 m2, þar af parhús 222,3 m2 og bílskúr 40,4 m2.

 
Neðri hæð:
Forstofa
er með fataskápum og flísum á gólfi.
Herbergi nr. 1 með fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi nr. 2 með fataskápum og parketi á gólfi.
Gestasnyrting með innréttingu, flísum á gólfi og vegghengdu salerni. 
Hol, stofa, borðstofa og eldhús er með flísum á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting frá Kvik. Í innréttingu eru tveir ofnar, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, gashelluborð og háfur. Úr stofu er rennihurð út í garð.
Þvottahús er með innréttingu og fataskápum, flísar á gólfi. Úr þvottahúsi er útgengi út í garð.
Geymsla er með hillum og glugga. Parket á gólfi.
Bílakúr er rúmgóður með epoxý málningu á gólfi.
Úr holi er fallegur stigi upp á efri hæðina.
Efri hæð:
Herbergi nr. 3 er hjónaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherberi er gengið út á svalir.
Herbergi nr. 4  er með fataskápum og parketi á gólfi. 
Herbergi nr. 5 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi nr. 6 er í dag notað sem sjónvarpsherbergi Parket á gólfi og rennihurð út í hol.
Hol er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt . Innrétting, baðkar og sturta.
 

Verð kr. 144.000.000,
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.