Bergrúnargata 1A, 270 Mosfellsbær
104.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
4 herb.
181 m2
104.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
83.750.000

**Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 eða Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Bergrúnargötu 1A í Mosfellsbæ.  Eignin afhendist tilbúin til innréttinga á byggingarstigi 5, samkvæmt skilalýsingu seljanda, með grófjafnaðri lóð. Eignin er skráð 181,8 m2, þar af íbúðarrými 149,1 m2 og bílskúr 32,7 m2.
Eignin skiptist í: Efri hæð: Forstofu, bílskúr, gestasnyrtingu, eldhús, stofu og borðstofu. Neðri hæð: 3 svefnherbergi, gangur, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Gott skipulag og mikil lofthæð.

Verð kr. 104.900.000,- 

 
Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss:  Útveggir: Húsið er staðsteypt, steinað í ljósum lit.
Þak: Þak er hefbundið sperruþak með þakpappa og lituðu bárustáli. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágenginn.                                                 
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar.
Bílskúrshurð með rafmagnsopnun.
Svalir: Svalir skilast með fullfrágengnu glerhandriði
 
Lóð: Lóð er grófjöfnuð. Búið að steypa útitröppur með snjóbræðslu. Sorptunnuskýli fyrir 3 sorpílát.
 
Innanhúss:
Gólf eru steypt og röraslötuð.
 Innveggir: Eru að hluta steyptir og að hluta hefðbundnir gipsveggir klæddir tveimur lögum af gipsplötum. Veggur milli baðherbergis og þvottahúss er hlaðinn og pússaður. Veggir eru spartslaðir og grunnaðir. Veggir á aðalbaðherbergi eru ómeðhöndlaðir.
Loft: Loft á neðri hæð eru steypt, spörtsluð og grunnuð. Loft á efrihæð eru gipsloft, spörtsluð og grunnuð.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í vinnulýsingu. Búið að leggja fyrir halogen/led fyrir ofan loft þar sem við á samkvæmt teikningu. Gert er ráð fyrir lögnum vegna hleðslustöðvar fyrir rafbíl. Öll útiljós komin upp og tengd.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Lagnir fyrir heitan pott. Einn útikrani í stað tveggja eins og segir á teikningu. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Hámkarkshiti á heitu vatni er 60°C. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar.
 
Eignin skilast tilbúin til innréttinga samkvæmt byggingarstigi 5 ÍST 51:2001. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Kaupandi skal fá nýjan byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar.
 Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.